Reynslusögur viðskiptavina
Hvernig Maeil Business Newspaper færir lesendum sínum möguleika á ítarlegri rannsókn á eigin vef með Sonar API frá Perplexity

44,3%
fjölgun leita
22,6%
fjölgun leitarnotenda
26,7%
leitarnotenda smella á tilbúnar spurningar (staðan í maí)
Vandinn
Hraðari aðgangur að upplýsingum á vefnum með gervigreindarleit
Sem fremsti efnahagsfjölmiðill Kóreu leggur Maeil Business Newspaper metnað sinn í að færa milljónum lesenda nákvæmar og nýjar upplýsingar á hverjum degi. Þótt vefur útgefandans hafi að geyma fjölda ítarlegra greina (í 14 aðskildum flokkum) var erfitt að nálgast innsýnina sem í þeim bjó.
Þar sem yfir 600 greinar birtast daglega á vef Maeil þurftu lesendur leið til að nálgast upplýsingar þegar þeim hentaði. Maeil bauð áður upp á leit á vefnum til að vísa lesendum í rétta átt, en hún neyddi þá samt til að fara í gegnum margar greinar sem tengdust fyrirspurn þeirra til að finna þá innsýn sem þeir þurftu.
Maeil setti fram þá tilgátu að gervigreind gæti bætt leitarupplifunina á vefnum með því að sækja upplýsingar úr fyrirliggjandi greinum til að svara spurningum lesenda. Eftir að hafa skoðað nokkrar þekktar gervigreindarlausnir komst Maeil þó að því að flestar voru ekki fínstilltar fyrir leit, að því marki að svörunum hætti til ofskynjana.
Maeil áttaði sig fljótt á því að það þyrfti sérhæfða gervigreindarsvarvél sem væri:
- Trúverðug: Maeil vissi að kröfuharðir lesendur myndu vantreysta leitarniðurstöðum án viðeigandi heimildatilvísana. Til að eyða efasemdum þeirra og auka um leið sýnileika fyrirliggjandi greina leitaði Maeil að lausn sem tengdi hvert svar við innri heimild.
- Skilvirk: Til að tryggja að milljónir daglegra lesenda hefðu áreiðanlegan aðgang að þeirri innsýn sem þá þyrsti í þurfti Maeil gervigreindarsvarvél sem gæti skilað ítarlegum upplýsingum í stórum stíl.
- Aðgengileg: Þar sem lesendur höfðu mismikla tæknikunnáttu þyrfti gervigreindarsvarvél Maeil að geta skilað ítarlegum svörum jafnvel við einföldustu fyrirspurnum.
Þegar teymi Maeil kynntist Sonar API frá Perplexity var ljóst að það hafði fundið þá óaðfinnanlega nákvæmu svarvél sem þurfti til að bæta upplifun lesenda á vefnum.
“Nýstárleg leitarvirkni Sonar veitir lesendum okkar meiri dýpt og betra aðgengi. Það var ánægjulegt að sjá hvernig hún bætti upplifun lesenda með því að skapa nýja leið til lærdóms og varpa um leið ljósi á störf okkar. Á meðan við höldum áfram að innleiða gervigreind innan fyrirtækisins mun Perplexity gegna lykilhlutverki í mótun stafrænnar menningar okkar.”
Lausnin
Gagnastudd og auðmeltanleg innsýn á nokkrum sekúndum
Gervigreindarstarfshópur Maeil hjá Maekyung Media Group leiddi innleiðingarferlið. Hann mótaði stefnu um innleiðingu Sonar í samstarfi við innra teymi Perplexity og kynnti jafnframt nýjan gervigreindarleitarmöguleika fyrir lesendur Maeil.
Með Sonar API frá Perplexity þjappar Maeil upplýsingum úr þúsundum greina saman í auðmeltanleg svör við brýnustu spurningum lesenda sinna.
Lesandi gæti til dæmis slegið inn fyrirspurn á borð við: „Hvaða stefnubreytingar munu hjálpa Kóreu að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050?“ Sonar-leit Maeil sækir þá þær upplýsingar sem best eiga við úr fyrirliggjandi greinum útgefandans og setur þær saman í heildstætt svar á nokkrum sekúndum. Auk þess vísar hver leitarniðurstaða í upprunalegu greinina, sem eykur þátttöku lesenda og styrkir traust.
Ávinningurinn einskorðast ekki við aukinn efnahagslegan skilning. Þar sem greinar Maeil spanna fjölbreytt svið (allt frá viðskiptainnsýn til tækni og jafnvel fasteigna) fá lesendur aðgang að innsýn sem nýtist einnig í daglegu lífi þeirra.
Í einu tilviki voru nýgift hjón að undirbúa kaup á sinni fyrstu íbúð og notuðu Sonar-leit Maeil til að kynna sér stuðningsúrræði í húsnæðismálum. Í öðru dæmi notaði fjárfestir, sem hafði áhyggjur af sveiflum á bandarískum hlutabréfamarkaði, leitina til að fá fjárfestingarráðgjöf byggða á nýlegri efnahagsþróun, þar á meðal innsýn í tiltekin fyrirtæki og atvinnugreinar. Og útgefandinn nýtur líka góðs af — þessi gagnsemi lengir þann tíma sem lesendur verja á vefnum.
Það sem hófst sem átak til að auka aðgengi að innri upplýsingum þróaðist fljótt í heildstæða endurskoðun á því virði sem Maeil býður lesendum sínum. Í dag er Sonar-leit Maeil einn mesti ávinningurinn sem miðillinn býður lesendum.
Niðurstaðan
Leitarfyrirspurnum fjölgaði um 44,3%
Eins og Maeil gerði ráð fyrir bætti Sonar API frá Perplexity það hvernig lesendur nálgast upplýsingar á vefnum. Frá því að leitareiginleiki Sonar var kynntur hefur leitum á vefnum fjölgað um 44,3%, sem sýnir hvernig viðbótin ýtir undir forvitni og lærdóm. Nú geta lesendur kynnt sér kóreskt efnahagslíf á auðveldan hátt án þess að yfirgefa vef Maeil.
Gervigreindarvegferð Maeil er þó rétt að hefjast. Útgefandinn hyggst nýta Sonar API frá Perplexity enn frekar og mæla með framhaldsspurningum sem byggja sérstaklega á fyrirliggjandi efni Maeil til að bæta mælikvarða á vefnum. Eftir því sem birtum greinum Maeil fjölgar tryggir fjárfesting miðilsins í gervigreind að engin innsýn fari fram hjá lesendum.
Sonar Chat Completions heitir nú Agent API og býður upp á fleiri líkön, verkfæri og forstillingar sem byggja á rannsóknum. Kynntu þér skjölunina okkar hér.