Vinndu með teymisfélögum í farsíma með raddstillingu
Áskrifendur að Perplexity Max geta hringt í teymisfélaga til að úthluta verkefnum, fara yfir niðurstöður og breyta forgangsröðun úr símanum sínum.

Fyrir tveimur vikum kynntum við til sögunnar teymisfélaga, gervigreindarfulltrúa sem stýra viðvarandi verkefnum í Perplexity Computer. Síðan þá hefur fólk falið þeim alvöru verkefni sem rannsóknargreinendum, SEO-stjórum og aðstoðarmönnum framkvæmdastjóra, auk annarra verka. Eftir því sem teymisfélagar taka að sér krefjandi verkefni vill fólk geta talað við þá á ferðinni.
Í dag gerum við það mögulegt með raddstillingu fyrir teymisfélaga sem er aðgengileg í iOS og Android. Nú getur fólk ýtt á símtalshnapp í símanum sínum til að biðja teymisfélaga að hefjast handa við verkefni. Einnig er hægt að nota raddstillingu í farsíma fyrir áframhaldandi vinnu, til að fá stöðuuppfærslur á verkefnum frá teymisfélögum eða ræða breytingar á áætlunum.
Uppfærslan endurspeglar áherslu okkar á að þróa vörur út frá því hvernig fólk vill vinna. Nærri þriðjungur af mest krefjandi vinnunni sem fólk vinnur á vettvangi okkar fyrir gervigreindarfulltrúa, Computer, hefst nú þegar í iPhone. Nú þegar teymisfélagar eru komnir í farsíma getur fólk gefið þeim markmið í símtali. Teymisfélagarnir skipuleggja síðan vinnuna, kanna niðurstöðurnar og skila afrakstrinum til notandans til yfirferðar.
Unnið með teymisfélögum með röddinni
Það er að breytast hvernig fólk notar gervigreind í vinnunni. Í stað þess að útlista hvert einasta skref getur fólk gefið teymisfélaga markmið og látið hann skipuleggja og vinna verkið. Þannig getur fólk einbeitt sér að útkomunni og farið yfir niðurstöðurnar. Raddstilling auðveldar fólki að taka stöðuna eða breyta um stefnu á meðan.
Nú er hægt að ýta á símtalshnapp til að fela teymisfélaga verkefni á leiðinni á fund og hringja svo aftur eftir fundinn ef forgangsröðunin hefur breyst. Teymisfélaginn getur unnið í þeim forritum sem tengd eru honum. Þegar hann þarf á ákvörðun að halda sendir hann tilkynningu. Fólk getur svarað upphátt eða opnað þráðinn til að sjá hvað er búið og hvað tekur við næst.
Nýir notkunarmöguleikar
Teymisfélagi getur rannsakað endurtekið vandamál, kannað markað eða prófað fyrirhugaða breytingu á vöru. Svona getur símtal hljómað í fimm vinsælum hlutverkum:
- Aðstoðarmaður framkvæmdastjóra: „Sjáðu um pósthólfið mitt og dagatalið. Segðu mér á hverjum morgni hverjum ég þarf að svara og hvaða fundi þarf að færa. Skrifaðu drög að svörum, stingdu upp á nýjum tímum og haltu öllu óleystu á listanum mínum.“
- Rannsóknargreinandi: „Hvað breyttist á markaðnum okkar í þessari viku? Kannaðu stærstu breytinguna, láttu mig vita ef eitthvað nýtt hefur komið fram og uppfærðu áætlun daglega út frá nýjum niðurstöðum.“
- SEO- og AEO-stjóri: „Finndu út hvers vegna þessar síður birtast ekki í leit og lagaðu vandamálið. Skrifaðu svo drög að algengum spurningum um verðlagningu sem leitarvélar og gervigreindaraðstoðarmenn geta nýtt sér. Haltu áfram að skanna síðurnar daglega og gera nauðsynlegar lagfæringar.“
- Gagnagreinandi: „Fylgstu með umbreytingarhlutfallinu frá skráningu til kaupa. Þegar það lækkar skaltu finna hvar við missum fólk og mæla með prófun. Þegar prófunin hefur verið keyrð skaltu segja mér hvort hún hjálpaði og hvað við ættum að prófa næst.“
- Hugbúnaðarverkfræðingur: „Rannsakaðu villuna í greiðsluferlinu, lagaðu hana og bættu við prófun. Sýndu mér forskoðun áður en við sameinum og athugaðu svo hvort lagfæringin heldur eftir útgáfu.“
Uppsetning og framboð
Teymisfélagar á vefnum og í farsíma eru í boði fyrir áskrifendur að Perplexity Max. Notendur ókeypis áskriftar og áskrifendur að Pro geta uppfært undir Stillingar > Reikningur > Áskrift.
Til að búa til og stilla teymisfélaga:
- Opnaðu farsímaforrit Perplexity og búðu til teymisfélaga.
- Gefðu teymisfélaganum nafn sem endurspeglar verkefnið sem þú vilt að hann sinni og fylgdu síðan uppsetningarskrefunum.
- Tengdu verkfærin sem hann þarf. Settu upp viðbætur á borð við Slack, GitHub eða Gmail. Fyrir GitHub skaltu velja hvaða kóðageymslum teymisfélaginn hefur aðgang að.
- Lýstu vinnunni sem hann á að bera ábyrgð á. Tilgreindu hvaðan vinnan kemur, hverju hann á að skila og hvenær hann á að bregðast við.
- Tengdu hann við verkefni og gefðu honum fyrsta verkið, til dæmis að kanna markað, bæta skráningarferli eða rannsaka villur.
Á næstu vikum munum við auka aðgang og eiginleika teymisfélaga.
Búðu til teymisfélaga í dag.